Lionel Messi bestur í heiminum 2009

Lionel Messi með verðlaun sín, ásamt Michel Platini, forseta UEFA, …
Lionel Messi með verðlaun sín, ásamt Michel Platini, forseta UEFA, og Sepp Blatter, forseta FIFA. Reuters

Argentínumaðurinn Lionel Messi var í kvöld útnefndur besti knattspyrnumaður heims á árinu 2009 af FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandinu, á stórhátíð þess sem nú stendur yfir í Zürich í Sviss.

Messi átti frábært tímabil með Barcelona og vann með liðinu alla þá sex titla sem liðið gat unnið á árinu. Hann skoraði 38 mörk fyrir Barcelona á tímabilinu 2008-2009, þar af 23 í spænsku 1. deildinni. Þá varð hann markakóngur Meistaradeildar Evrópu með 9 mörk.

Lionel Messi, besti knattspyrnumaður heims.
Lionel Messi, besti knattspyrnumaður heims. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert