Birkir bestur hjá Viking Stavanger
Birkir Bjarnason, leikmaður með 21-árs landsliði Íslands í knattspyrnu, hefur verið útnefndur „Víkingur ársins“ í kosningu lesenda Rogalands Avis, sem kusu hann þar með besta leikmann úrvalsdeildarliðsins Viking frá Stavanger á árinu 2009.
Birkir var í stóru hlutverki hjá Viking í ár. Hann lék alla 30 leiki liðsins í úrvalsdeildinni, sem miðjumaður, og skoraði í þeim 7 mörk. Í umfjöllun Rogalands Avis segir að Birkir hafi verið einn af fáum leikmönnum sem stóðu uppúr í annars bitlausu liði Viking á árinu. Kjör hans komi því ekki á óvart en Birkir fékk 34 prósent atkvæða frá lesendum. Annar varð Thomas Myhre, fyrrum landsliðsmarkvörður Noregs, með 29 prósent atkvæða.
„Þó liðinu hafi gengið illa í ár gekk mér sjálfum ágætlega. Þetta var dýrmætt tímabil fyrir mig, nú náði ég að sýna mig og sanna," sagði Birkir við Rogalands Avis. Hann var lánaður frá félaginu árið 2008 og spilaði þá með Bodö/Glimt. Birkir er 21 árs gamall og hefur verið í aðalliðshópi Viking frá 18 ára aldri.
Þess má geta að faðir Birkis, Bjarni Sveinbjörnsson, var drjúgur markaskorari með Þór á Akureyri á sínum tíma og er markahæsti leikmaður Akureyrarfélagins í efstu deild frá upphafi með 42 mörk í 114 leikjum. Systir Birkis, Björg Bjarnadóttir, hefur leikið með Klepp í norsku úrvalsdeildinni undanfarin sex ár.






