Egyptar urðu Afríkumeistarar

Ahmed Hassan. fyrirliði egypska landsliðsins, hóf Afríkubikarinn hátt á loft eftir að lið hans sigraði ... stækka

Ahmed Hassan. fyrirliði egypska landsliðsins, hóf Afríkubikarinn hátt á loft eftir að lið hans sigraði í keppninni. Úrslitaleikurinn var gegn landsliði Ghana og fór hann fram í Luanda, höfuðborg Angóla í dag. Reuters

Gríðarlegur fögnuður braust út í Kaíró í Egyptalandi í dag þegar landslið Egypta í knattspyrnu sigraði landslið Ghana 1-0 í keppni um Afríkubikarinn. Egyptar urðu þar með Afríkumeistarar í knattspyrnu í þriðja skiptið í röð. Þeir hafa unnið titilinn alls sjö sinnum.

Hávær fagnaðaróp brutust út um alla Kaíró þegar þjóðhetjan Mohammed „Gedo“ Nagy skoraði sigurmarkið á 85. mínútu. Það tryggði Faraóunum sigur í úrslitaleiknum sem fram fór í höfuðborg Angóla. 

Egyptar þustu út á götur, dönsuðu og börðu bumbur, allt frá Giza syðst í landinu til Nasr borgar í norðri. Fólkið réði sér ekki fyrir kæti þar sem það dansaði um sveipað þjóðfánanum og sprengjandi kínverja.

Mannfjöldinn hrópaði „Egyptaland, Egyptaland“ á götum Dokki hverfisins og tafði bílaumferðina. Ljósvakamiðlar spiluðu ættjarðarlög og Hosni Mubarak forseti sendi landsliðinu heillaóskir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is