Stabæk vildi fá Solskjær sem þjálfara

Ferguson og Solskjær bera saman bækur sínar á æfingu Manchester United. stækka

Ferguson og Solskjær bera saman bækur sínar á æfingu Manchester United. Reuters

Forráðamenn norska úrvalsdeildarliðsins Stabæk áttu óformlega viðræður við Ole Gunnar Solskjær um liðna helgi þar sem að sú hugmynd lögð fram að hann tæki að sér þjálfun liðsins sem Veigar Páll Gunnarsson og Pálmi Rafn Pálmason leika með.

Allt útlit er fyrir að sænski þjálfarinn Jan Jonsson sem nú stýrir Stabæk sé á leið til Rosenborg sem leitar að eftirmanni Erik Hamrens sem er nú þjálfari sænska landsliðsins.

Ole Gunnar Solskjær starfar nú sem þjálfari varaliðs Manchester United en hann hefur sýnt góða takta í því starfi og vakið athygli. Hann afþakkaði að taka að sér norska landsliðið þegar Åge Hareide hætti með liðið.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is