Borgvardt færir sig um set í Noregi

Allan Borgvardt fagnar marki með FH-ingum.

Allan Borgvardt fagnar marki með FH-ingum. mbl.is

Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt, sem lék með Íslandsmeisturum FH fyrir nokkrum árum við góðan orðstír, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við norska 1. deildarliðið Sandnes Ulf. Þar með er ljóst að Daninn knái snýr ekki aftur í íslenska fótboltann en FH-ingar hafa undanfarin ár reynt að fá hann til liðs við sig á nýjan leik.

Borgvardt hefur leikið með Bryne í norsku 1. deildinni frá árinu 2006 en hann fékk sig lausan undan samningum við Bryne í gær en félagið glímir við mikinn fjárhagsvanda.

Forráðamenn Sandnes Ulf voru fljótir til og buðu Borgvardt samning sem hann ákvað að taka en Sandnes Ulf vann sig upp í 1. deildina í haust.

Borgvardt lék með FH í þrjú tímabil, 2003-2005 og skoraði 34 mörk í 53 leikjum liðsins í deildinni og í bikarkeppninni. Hann var valinn besti leikmaður Íslandsmótsins í tvígang á lokahófi KSÍ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is