Cabanas hugsar um HM með byssukúlu í höfðinu

Salvador Cabanas. stækka

Salvador Cabanas. Reuters

 Salvador Cabanas, sóknarmaður paragvæska landsliðsins í knattspyrnu, er á batavegi eftir að hann var skotinn í höfuðið á veitingastað í Mexíkó þann 24. janúar s.l. Cabanas, sem er 29 ára gamall, er leikmaður mexíkóska liðsins America og í gær sagði forseti félagsins Michel Bauer að Cabanas væri staðráðinn í því að leika með landsliði Paragvæ á heimsmeistaramótinu í Suður-Afríku í sumar þrátt fyrir að læknum hafi ekki tekist að ná byssukúlunni úr höfði hans. 

„HM er það eina sem kemst að hjá honum í samtölum við lækna, og það er gott. Hann hefur sett sér markmið og það hvetur hann til dáða,“ sagði Bauer m.a. við fjölmiðla í Mexíkó í gær.  Cabanas komst til meðvitundar um s.l. helgi og getur hann hreyft bæði fætur og hendur, og heilastarfssemi hans virðist eðlileg. 

Cabanas var markahæsti leikmaður Paragvæ í undankeppni HM, og þar skoraði hann 6 mörk.

Framherjinn var fyrir skömmu orðaður við enska úrvalsdeildarliðið Sunderland en með því leikur liðsfélagi hans í landsliðinu, Paulo da Silva.
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is