Brann fékk lán til að greiða laun

Giovanni van Bronkhorst og Birkir Már Sævarsson í baráttunni á Laugardalvelli. stækka

Giovanni van Bronkhorst og Birkir Már Sævarsson í baráttunni á Laugardalvelli. Eggert Jóhannesson

Forráðamenn norska fótboltaliðsins Brann gátu ekki greitt út laun til starfsmanna félagsins og leikmanna í janúar án þess að fá um 330 milljóna kr. lán. Hand Brandtun stjórnarformaður Brann segir  að árið 2009 hafi reynst félaginu erfitt fjárhagslega en hann er bjartsýnn á að ná endum saman í rekstri liðsins á þessu rekstrarári.

Ólafur Örn Bjarnason, Gylfi Sigurðsson og Birkir Már Sævarsson eru á mála hjá Brann en þeir Kristján Örn Sigurðsson og Ármann Smári Björnsson eru farnir frá Brann.

Á síðasta ári gengu rekstraráætlanir Brann ekki upp. Sala á ársmiðum dróst saman um rúmlega 110 milljónir kr. en um 16.000 áhorfendur mættu að meðaltali á heimaleiki félagsins í Bergen. Brann Stadion tekur um 17.300 áhorfendur. Heildartap Brann var um hálfur milljarður kr. og  heildarvelta félagsins var rúmlega 3,3 milljarðar kr.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is