Sölvi, Ólafur Ingi og félagar þeirra borga fyrir æfingaferð

Sölvi Geir Ottesen. stækka

Sölvi Geir Ottesen. Ómar Óskarsson

Sölvi Geir Ottesen, Ólafur Ingi Skúlason og samherjar þeirra í danska úrvalsdeildarliðinu Sønderjyske verða sjálfir að greiða fyrir æfingaferð liðsins til La Manga á Spáni. Rekstur Sønderjyske er erfiður um þessar mundir og félaginu er nauðsynlegt að draga útgjöld saman um á milli átta og tíu milljónir danskra króna á þessu ári.

Æfingaferðin til La Manga var slegin af í sparnaðarskyni fyrir nokkru síðan. Á dögunum vaknaði á ný áhugi fyrir æfingaferðinni eftir að sú hugmynd vaknaði að leikmenn greiddu ferðina að öllu leyti. Vel var tekið í það af hálfu leikmanna auk þess sem nokkrir styrktaraðilar liðsins lögðu sitt af mörkum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í gær

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is