Mæta Portúgal og Kýpur í fyrsta sinn

Pétur Pétursson og Ólafur Jóhannesson geta verið tiltölulega sáttir við þau lið sem Ísland mætir ... stækka

Pétur Pétursson og Ólafur Jóhannesson geta verið tiltölulega sáttir við þau lið sem Ísland mætir í undankeppni EM. Ómar Óskarsson

Íslendingar mæta Portúgölum og Kýpurbúum í fyrsta sinn í undanakeppni stórmóts í knattspyrnu en dregið var í riðla í undankeppni EM 2012  í Varsjá í Póllandi í morgun. Úrslitakeppnin verður haldin í Póllandi og Úkraínu árið 2012. Danir og Norðmenn eru H-riðli ásamt Íslandi, Portúgal og Kýpur.

Þetta er í fjórða sinn sem Ísland er í riðli með Noregi í undankeppni stórmóts, en Íslendingar voru í riðli með Noregi í undankeppni HM 2010. Danir hafa tvívegis áður verið með Íslandi í riðli í undankeppni stórmóts. Portúgal og Kýpur hafa hinsvegar aldrei verið í riðli með Íslendingum í riðli í undankeppni stórmóts.

 
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is