Íþróttir
|
Fótbolti
| Morgunblaðið
| 8.3.2010
| 8:28
Árni á að ná fyrsta leik
Meiðslin sem Árni Gautur Arason, landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, varð fyrir í landsleiknum við Kýpur á miðvikudaginn reyndust ekki alvarleg. Árni fór þá af velli í fyrri hálfleik, meiddur í öxl.
Á vef norska liðsins Odd Grenland segir að allt bendi til þess að Árni nái að spila með liðinu um næstu helgi en þá leikur Odd gegn Stabæk í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar. vs@mbl.is
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






