Birkir skoraði tvö gegn Start

Birkir Bjarnason lék vel með Viking í gær. stækka

Birkir Bjarnason lék vel með Viking í gær. mbl.is/Kristinn

Birkir Bjarnason, leikmaður 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, skoraði bæði mörk Viking Stavanger í síðasta æfingaleik liðsins áður en keppni hefst í norsku úrvalsdeildinni um næstu helgi.

Viking lék við Start í gær og beið lægri hlut, 2:3. Birkir skoraði tvívegis í seinni hálfleiknum og kom Stavangerliðinu í 2:1 en Start tryggði sér sigur með tveimur mörkum undir lokin.

Birkir, sem er 21 árs gamall miðjumaður, hefur verið í röðum Viking í fjögur ár. Í fyrra lék hann alla 30 leiki liðsins í norsku úrvalsdeildinni og skoraði 7 mörk.

Hann lék sinn 19. leik með 21-árs landsliði Íslands þegar það gerði jafnteflið frækna, 2:2, gegn Þjóðverjum í Magdeburg í síðustu viku.

Viking leikur gegn Vålerenga á útivelli í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar næsta mánudag, 15. mars.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is