Ekkert samkomulag í EM-riðlinum

Heiðar Helguson og Magne Hoseth í leik Íslands og Noregs, sem eru saman í riðli ... stækka

Heiðar Helguson og Magne Hoseth í leik Íslands og Noregs, sem eru saman í riðli í EM. mbl.is/Eggert

Fulltrúar Íslands, Portúgals, Danmerkur, Noregs og Kýpur náðu ekki samkomulagi um leikdaga í riðli þjóðanna í undankeppni Evrópumótsins í knattspyrnu þegar þeir hittust í Kaupmannahöfn í dag.

Þar átti að reyna að festa leikdaga í keppninni, sem hefst í sumar eða haust og leikið er um sæti í lokakeppninni sem fer fram í Póllandi og Úkraínu 2012.

„Það virtist aldrei vera neinn samningsgrundvöllur og það bar mikið á milli hugmynda þjóðanna," sagði Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari Íslands við mbl.is eftir fundinn.

Þar með kemur til kasta UEFA sem dregur um leikdagana og verður það gert í næstu viku.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is