Breiðablik vann Kópavogsslaginn

Arnór Sveinn Aðalsteinsson skoraði eitt marka Breiðabliks. stækka

Arnór Sveinn Aðalsteinsson skoraði eitt marka Breiðabliks. mbl.is/Ómar Óskarsson

Breiðablik hafði betur í Kópavogslagnum gegn HK en liðin áttust við í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, í Kórnum í gær þar sem fjölmargir áhorfendur fylgdust með . Í hörkuleik höfðu Blikar betur, 3:2, og þeir hafa þar með unnið alla fjóra leiki sína.

HK-ingar náðu forystunni á 12. mínútu þegar markaskorarinn mikli Jónas Grani Garðarsson skoraði. Sex mínútum síðar jafnaði Alfreð Finnbogason fyrir Blikana og staðan í hálfleik, 1:1.

Þórður Birgisson kom HK aftur yfir á 52. mínútu þegar hann skoraði eftir góðan undirbúning  Jónasar Grana og Harðar Magnússonar en Breiðablik jafnaði metin á 80. mínútu þegar bakvörðurinn Arnór Sveinn Aðalsteinsson skoraði með þrumuskoti utan vítateigs.

Þegar allt stefndi í jafntefli skoraði Rafn Andri Haraldsson sigurmark Blika á 88. mínútu en rétt áður hafði HK fengið tvö góð færi.

Breiðablik hefur 12 stig eftir fjóra leiki en HK 1 stig eftir 3 leiki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is