Sterkt lið Færeyinga mætir í Kórinn

Símun Samuelsen er í liði Færeyinga sem mætir í Kórinn 21. mars. stækka

Símun Samuelsen er í liði Færeyinga sem mætir í Kórinn 21. mars. mbl.is

Brian Kerr, landsliðsþjálfari Færeyinga í knattspyrnu, tilkynnti í gær 20 manna landsliðshóp fyrir vináttuleikinn gegn Íslandi sem fer fram í Kórnum 21. mars.

Færeyingar koma hingað með flesta sína bestu leikmenn en í hópnum eru níu af þeim ellefu sem skipuðu byrjunarlið þeirra í síðasta leiknum í undankeppni HM síðasta haust, þegar þeir töpuðu 1:3 fyrir Rúmenum á útivelli. Þrettán af þessum tuttugu voru í 18 manna hópnum gegn Rúmenum.

Þrír góðkunningjar Íslendinga eru í hópnum. Símun Samuelsen, sem er nýfarinn til Færeyja eftir hálft fimmta ár í Keflavík, Rógvi Jacobsen, fyrrum leikmaður KR, og Fróði Benjaminsen, fyrrum leikmaður Fram.

Sex í hópnum spila með erlendum liðum. Þar á meðal er markvörðurinn hálfíslenski, Gunnar Nielsen frá Manchester City, sem átti stórleik fyrir ári síðan þegar Færeyingar lögðu Íslendinga, 2:1, í Kórnum. Einnig 18 ára piltur, Jóan Símun Edmundsson, sem samdi við Newcastle í vetur, en hann spilaði sinn fyrsta A-landsleik gegn Frökkum á síðasta ári og þykir mikið efni. Hinir fjórir leika með dönsku 1. deildarliðunum Frem og Roskilde.

Þrír leikmenn koma frá HB, liðinu sem Kristján Guðmundsson þjálfar nú, þeir Símun, Fróði og Vagnur Mohr Mortensen. B36 og NSÍ eiga einnig þrjá leikmenn hvort í hópnum.

Íslenska liðið verður sem kunnugt er skipað leikmönnum íslenskra liða, nema hvað Jóhann Berg Guðmundsson og Kolbeinn Sigþórsson koma frá Alkmaar í Hollandi. vs@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is