Helgi iðinn við kolann hjá Víkingi

Helgi Sigurðsson. stækka

Helgi Sigurðsson. mbl.is/Eggert

Helgi Sigurðsson kom Víkingum á bragðið þegar liðið vann stórsigur á Fjölni 3:0 í Lengjubikarkeppni karla í kvöld. Helgi hefur verið drjúgur fyrir Víking að undanförnu en hann gekk í raðir félagsins á ný síðasta haust.

Helgi skoraði strax á 5. mínútu og Pétur Svansson bætti öðru við á 31. mínútu. Þriðja markið kom á 35. mínútu og var sjálfsmark. 

Víkingur er með 6 stig eftir 3 leiki í öðrum riðli A-deildar og er í 2. - 4. sæti. Fjölnir er með 3 stig eftir 4 leiki í 6. sæti. Valur og Fram gerðu jafntefli í kvöld og Fram er á toppnum með 10 stig eftir 4 leiki en Valur hefur 4 stig eftir 3 leiki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is