„Ég notaði bara tækifærið“

Unnur Tara Jónsdóttir býr sig undir að skjóta á körfu Hauka í leiknum í kvöld. stækka

Unnur Tara Jónsdóttir býr sig undir að skjóta á körfu Hauka í leiknum í kvöld. mbl.is/Árni Sæberg

mbl.is Eftir Stefán Stefánsson, ste@mbl.is

„Ég notaði bara tækifærið þegar Haukar lögðu áherslu á aðra leikmenn og það var opið fyrir mig, það gerist stundum,“ sagði Unnur Tara Jónsdóttir, sem var stigahæst hjá KR-konum í gærkvöldi með 24 í 78:47 sigri á Haukum í fyrsta undanúrslitaleik, sem fram fór í Vesturbænum.  

„Við ætluðum fyrst og fremst að stöðva Heather og það gekk vel í byrjun og ef við náum líka að stöðva Kiki Lund er möguleikar okkar meiri.   Ég held það hafi komið upp smá kæruleysi eftir 20 stiga forystu eftir fyrsta leikhluta en sem betur fer náðum við að komast í gang aftur. Við ætluðum ekkert að fara tapa hér á heimavelli og held að sú hugsun hafi komið okkur í gang aftur. Við viss um að þetta yrð erfitt og það verður erfitt að fara í næsta leik á heimavelli Hauka en við erum baráttulið og finnst gaman að berjast. Okkar aðal er vörnin, góðri vörn fylgir oft góður sóknarleikur,“ sagði Unnur Tara í samtali við mbl.is í kvöld.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is