Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 14.3.2010
| 22:15
Higuain setti þrjú fyrir Real Madrid
Argentínumaðurinn Gonzalo Higuain lék sama leik og landi sinn, Lionel Messi, þegar Real Madrid sigraði Valladolid, 4:1, á útivelli í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Higuain, sem var einn aðal skúrkur Madridarliðsins þegar liðið féll úr leik í Meistaradeildinni fyrr í vikunni, skoraði þrennu og Real Madrid komst með sigrinum upp að hlið Barcelona í efsta sætið.
Cristiano Ronaldo opnaði markareikninginn fyrir Real Madrid þegar hann skoraði með glæsilegri aukaspyrnu og Higuain bætti svo við þremur mörkum á síðustu 45 mínútum leiksins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






