Íþróttir
|
Fótbolti
| mbl
| 14.3.2010
| 21:30
Messi með þrennu gegn Valencia
Argentínski snillingurinn Lionel Messi var maður leiksins þegar Barcelona skellti Valencia, 3:0, þegar liðin áttust við á Camp Nou vellinum í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Messi skoraði öll mörk Börsunga sem léku manni fleiri síðustu 25 mínútur leiksins.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






