Bjarni fékk rauða spjaldið

Bjarni Þór Viðarsson í leik með 21-árs landsliðinu. stækka

Bjarni Þór Viðarsson í leik með 21-árs landsliðinu. mbl.is/Eggert

Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður 21-árs landsliðsins í knattspyrnu, fékk rauða spjaldið í gærkvöld þegar lið hans, Roeselare, mætti Club Brugge í belgísku deildakeppninni í gærkvöld.

Bjarni og Hólmar Örn Eyjólfsson voru að vanda í byrjunarliði Roeselare sem beið nauman ósigur á útivelli gegn næstefsta liðinu í deildinni. Club Brugge skoraði sigurmarkið, 1:0, rétt fyrir leikslok. Þá voru leikmenn Roeselare orðnir manni færri eftir að Bjarna var vísað af velli fyrir brot á 73. mínútu. Hólmar lék allan leikinn í vörn Roeselare.

Lið þeirra á einn leik eftir, heimaleik gegn Westerlo, og getur forðast fall með sigri, takist Lokeren ekki að vinna Belgíumeistara Anderlecht á meðan. Lokeren er með 18 stig en Roeselare 17 fyrir lokaumferðina. Ekkert lið fellur beint úr deildinni þar sem lið Moeskroen varð gjaldþrota og hætti keppni.

Næstneðsta liðið fer í umspil og Roeselare og Lokeren bítast um að sleppa við það. Ljóst er að  Bjarni mun þurfa að taka út leikbann og missir því af þessum mikilvæga leik gegn Westerlo.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is