„Frábært að endurheimta Veigar“
Veigar Páll Gunnarsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, átti frábæra endurkomu í norska boltann þegar norska úrvalsdeildin hófst í snjókomu og vetrarveðri í gær.
Veigar varð meistari með Stabæk árið 2008 en er nú aftur kominn í herbúðir liðsins eftir tíðindalitla dvöl hjá Nancy í Frakklandi. Stabæk vann í gær góðan 3:2 útisigur á Odd Grenland og Veigar tók upp þráðinn þar sem frá var horfið á sínum tíma og lagði upp tvö fyrstu mörkin. Árni Gautur Arason samherji Veigars í landsliðinu stóð í marki Odd Grenland í leiknum og Pálmi Rafn Pálmason kom inn á fyrir Veigar í síðari hálfleik. Bjarni Ólafur Eiríksson lék jafnframt sinn fyrsta deildaleik fyrir Stabæk. Veigar sagðist í samtali við Nettavisen vera ánægður með að vera kominn aftur til Noregs.
„Það er alveg yndislegt að vera kominn aftur til Stabæk. Dvölin í Frakklandi var mjög erfið. Það er því fínt að vera kominn aftur til Noregs þar sem ég er öllum hnútum kunnugur,“ er haft eftir Veigari. Samvinna hans og sænska framherjans Daniels Nannskog var rómuð á sínum tíma og Svíinn skoraði fyrsta markið eftir undirbúning Veigars. „Varnarmenn Odd höfðu góðar gætur á Nannskog. Það ætlast allir til þess að við náum að vinna saman eins og við gerðum á sínum tíma, “ sagði Veigar.
Nannskog er ánægður með að hafa endurheimt Veigar í framlínuna.
„Við erum ekki algerlega háðir samvinnu okkar Veigars og við sýndum í dag að við eigum fleiri vopn í vopnabúrinu. Það er hins vegar frábært að fá Veigar aftur til liðsins. Hann er liðinu mjög mikilvægur. Við náðum líklega að sýna allar okkar bestu hliðar í dag en það er ákveðið jafnvægi í liðinu með Veigar innanborðs,“ sagði Svíinn Daniel Nannskog um Veigar Pál í samtali við Nettavisen. kris@mbl.is






