Ísland áfram í átjánda sæti

Kvennalandsliðið er númer 11 meðal Evrópuþjóða. stækka

Kvennalandsliðið er númer 11 meðal Evrópuþjóða. mbl.is/Algarvephotopress

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er áfram í 18. sætinu á nýjum heimslista FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandsins, sem gefinn var út í morgun.

Íslenska liðið er rétt á eftir Finnum sem eru í 17. sætinu, en þeir höfðu sætaskipti við Hollendinga sem nú eru í 16. sæti. Úkraína er síðan í 19. sætinu, aðeins einu stigi á eftir íslenska landsliðinu.

Sömu þjóðir skipa fjögur efstu sætin og síðast, Bandaríkin, Þýskaland, Brasilía og Svíþjóð, en íslenska liðið lék einmitt við bæði Bandaríkin og Svíþjóð í Algarvebikarnum á dögunum. Japan lyftir sér upp og er nú jafnt Norður-Kóreu í 5.-6. sætinu á listanum.

Frakkar, mótherjar Íslendinga í undankeppni HM síðar á árinu, fará upp um eitt sæti og eru nú jafnir Englendingum í 8.-9. sæti. Þá  fer Kanada upp um tvö sæti, í 10. sætið, uppfyrir Danmörku og Ítalíu.

Ísland er áfram í 11. sætinu yfir bestu Evrópuþjóðirnar.

Serbía, næsti mótherji Íslands í undankeppni HM þann 27. mars, er í 39. sæti heimslistans og fellur um eitt sæti síðan síðast. Króatía, sem er mótherji Íslands 31. mars í sömu keppni, stendur í stað í 53. sætinu. Eistland, sem einnig er í HM-riðlinum, fellur um fimm sæti og er í 81. sæti heimslistans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is