Arnór loksins af stað á ný

Arnór Smárason í leik með landsliði Íslands. stækka

Arnór Smárason í leik með landsliði Íslands. mbl.is/hag

Arnór Smárason, knattspyrnumaður hjá Heerenveen í Hollandi, hefur loksins fengið leyfi til að æfa á ný með aðalliði félagsins eftir að hafa verið frá keppni allt tímabilið vegna meiðsla.

Arnór hefur ekkert spilað síðan hann lék með A-landsliði Íslands gegn Hollandi og Makedóníu í undankeppni HM í júní síðasta sumar. Á síðasta tímabili var hann búinn að vinna sér fast sæti í aðalliðshópi Heerenveen og skoraði 5 mörk í 21 leik í úrvalsdeildinni.

Arnór, sem er 21 árs gamall framherji, hefur verið á séræfingum hjá sjúkraþjálfara félagsins undanfarnar vikur en var útskrifaður þaðan á dögunum og hóf í framhaldi af því æfingar með aðalliðinu. Lið Heerenveen siglir lygnan sjó um miðja hollensku úrvalsdeildina.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is