Advocaat tekur við rússneska landsliðinu

Dick Advocaat er sagður næsti stjóri Rússlands. stækka

Dick Advocaat er sagður næsti stjóri Rússlands. Reuters

Hollendingurinn Dick Advocaat mun taka við þjálfun rússneska landsliðsins í fótbolta karla samkvæmt heimildum rússneska dagblaðsins www.sport-express.ru. Guus Hiddink frá Hollandi hefur stýrt rússneska liðinu undanfarin ár en liðinu tókst ekki að komast í úrslit Heimsmeistaramótsins sem fram fer í Suður-Afríku í sumar.

Advocaat, sem er 62 ára, þekkir vel til í rússneska fótboltanum en hann var þjálfari Zenit í St. Pétursborg en liðið varð rússneskur meistari undir hans stjórn og fagnaði síðan sigri í UEFA-keppninni árið 2008. Advocaat er þjálfari belgíska landsliðsins samhliða starfi sínu sem knattspyrnustjóri AZ Alkmaar í Hollandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is