Brøndby hefur áhuga á að fá Sölva Geir

Sölvi Geir Ottesen. stækka

Sölvi Geir Ottesen. mbl.is/Ómar

Klaus Rasmussen framkvæmdastjóri danska fótboltaliðsins SønderjyskE segir í viðtali við Ekstrabladet að íslenski landsliðsmaðurinn Sölvi Geir Ottesen fari frá liðinu í lok tímabilsins.

Sölvi Geir hefur verið í herbúðum SønderjyskE í tvö ár og hefur varnarmaðurinn vakið athygli stærri liða í Danmörku og víðar. „Hann er einn af stóru bitunum á markaðinum og það eru miklar líkur á því að eitthvað gerist í hans málum í sumar,“ segir Rasmussen m.a. í viðtalinu. Samningur Sölva við SønderjyskE rennur út árið 2011 en samkvæmt heimildum Ekstrabladet er líklegt að Brøndby muni sýna Sölva áhuga. Twente, Hamburger, Fulham, Sunderland og Celtic hafa einnig verið nefnd til sögunnar. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is