Meiðsli Veigars eru ekki alvarleg

Veigar Páll Gunnarsson. stækka

Veigar Páll Gunnarsson. Ómar Óskarsson

Veigar Páll Gunnarsson leikmaður norska úrvalsdeildarliðsins Stabæk verður líklega með í leiknum gegn Vålerenga á laugardaginn. Veigar fór meiddur af velli í 3:2-sigurleik Stabæk gegn Odd/Grenland um s.l. helgi en í dag fékk framherjinn þær fréttir frá læknateymi Stabæk að meiðslin væru ekki eins alvarlega og talið var í fyrstu.

Í gær bárust þær fregnir úr herbúðum Stabæk að Veigar Páll gæti verið frá í allt að 6 vikur vegna tognunar, en það reyndist ekki vera rétt. „Hann mun æfa með liðinu á föstudag og við munum síðan taka ákvörðun með framhaldið,“ segir sjúkraþjálfari Stabæk á heimasíðu félagsins.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is