Mexíkó lagði Norður-Kóreu
Mexíkó, sem mætir Íslandi í vináttulandsleik í knattspyrnu næsta miðvikudagskvöld, sigraði í nótt lið Norður-Kóreu, 2:1, í vináttuleik í Torreón í Mexíkó. Báðar þjóðirnar leika á HM í Suður-Afríku í sumar.
Cuauhtémoc Blanco, einn reyndasti leikmaður Mexíkóa, kom þeim yfir á 51. mínútu. Hann er 37 ára gamall, lék sinn 109. landsleik og skoraði sitt 38. mark fyrir Mexíkó.
Kum-Chol Choe jafnaði fyrir Norður-Kóreu sex mínútum síðar. Það var síðan Javier El Chicharito Hernández sem skoraði sigurmark heimamanna á 69. mínútu, 2:1.
Þetta var þriðji sigur Mexíkóa í jafnmörgum upphitunarleikjum fyrir HM en fyrr í þessum mánuði burstuðu þeir Bólivíumenn, 5:0, og unnu síðan Ný-Sjálendinga, 2:0. Báðir leikirnir fóru fram í Bandaríkjunum, eins og leikurinn við Ísland sem verður leikinn í Charlotte frammi fyrir nálægt 70 þúsund áhorfendum.






