Reyndur Dani dæmir í Kórnum

Claus Bo Larsen. stækka

Claus Bo Larsen.

Einn af reyndari knattspyrnudómurum Evrópu, Claus Bo Larsen frá Danmörku, dæmir vináttulandsleik Íslands og Færeyja sem fer fram í Kórnum í Kópavogi á sunnudaginn klukkan 12.

Larsen hefur dæmt 17 leiki í Meistaradeild Evrópu, m.a. leik Liverpool og Chelsea í 8-liða úrslitum keppninnar og leik á milli Manchester United og Liverpool í undanúrslitum. Hann dæmdi ennfremur viðureign Manchester United og Zenit St. Pétursborg um Stórbikar Evrópu árið 2008. Þá var hann á meðal dómara í knattspyrnukeppni Ólympíuleikanna í Aþenu árið 2004.

Larsen verður með íslenska aðstóðardómara með sér, þá Gunnar Sverri Gunnarsson og Einar Sigurðsson en Þorvaldur Árnason verður fjórði dómari.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is