Mexíkó með heimamenn gegn Íslandi

Javier Aguirre, skapheitur þjálfari Mexíkóa. stækka

Javier Aguirre, skapheitur þjálfari Mexíkóa. heimasíða mexíkóska knattspyrnusambandsins

Enginn leikmaður frá erlendu félagi er í landsliðshópi Mexíkó í knattspyrnu sem valinn hefur verið fyrir vináttuleikinn gegn Íslandi sem fram fer í Charlotte í Bandaríkjunum á miðvikudagskvöldið.

Leikurinn fer ekki fram á alþjóðlegum leikdegi og fyrir vikið tefla Mexíkóar ekki fram leikmönnum frá evrópskum liðum.

Meðal þeirra sem verða fjarri góðu gamni eru fyrirliðinn Rafael Marquez, sem leikur með Barcelona, Carlos Vela frá Arsenal, Guillermo Franco frá West Ham, Ricardo Osorio frá Stuttgart, Andres Guardado frá Deportivo La Coruna, Hector Moreno frá AZ Alkmaar og Carlos Salcido frá PSV Eindhoven.

Sjö þeirra sem eru í hópnum gegn Íslandi voru í  20 manna hópi Mexíkóa fyrir tvo síðustu leiki þeirra í undankeppni HM í haust. Fimm þeirra voru í byrjunarliðinu í lokaleiknum. Liðið er því að stórum hluta skipað leikmönnum sem eru að slást um sæti í 23 manna hópi Mexíkó fyrir HM í Suður-Afríku í sumar.

Nokkrar breytingar eru gerðar á liðinu frá vináttuleiknum við Norður-Kóreu í fyrrinótt þar sem Mexíkó vann, 2:1. Þá vantaði leikmenn frá tveimur af sterkustu liðum Mexíkó, sem voru uppteknir vegna leikja í Meistaradeild Norður- og Mið-Ameríku, en þeir eru klárir í slaginn gegn Íslandi.

Meðal þeirra er einn reyndasti landsliðsmaður Mexíkó, Gerardo Torrado, sem á 106 landsleiki að baki og hefur verið fyrirliði liðsins þegar Rafael Marquez hefur verið fjarverandi.

Mexíkóski hópurinn er þannig skipaður:

Markverðir:
Guillermo Ochoa, América, 24 ára, 34/0
Luis Ernesto Michel, Chivas, 30 ára, 1/0

Varnarmenn:
Efraín Juárez, Pumas UNAM, 22 ára, 11/0
Paúl Aguilar, Pachuca, 24 ára, 2/2
Jonny Magallón, Chivas, 28 ára, 47/3
Juan Carlos Valenzuela, América, 25 ára, 4/0
Jorge Torres Nilo, Atlas, 22 ára, 4/0

Miðjumenn:
Jesús Molina, Tigres, 21 árs, 1/0
Adrián Aldrete, Monarcas, 21 árs, 4/0
Gerardo Torrado, Cruz Azul, 30 ára, 106/6
Israel Castro, Pumas UNAM, 29 ára, 26/1
Braulio Luna, San Luis, 35 ára, 32/2

Sóknarmenn:
Adolfo Bautista, Chivas, 30 ára, 31/9
Alberto Medina, Chivas, 26 ára, 49/2
Pablo Barrera, Pumas UNAM, 22 ára, 12/3
Ángel Reyna, América, 25 ára, 1/0
Miguel Sabah, Monarcas, 30 ára, 15/5
Vicente Matías Vuoso, Santos Laguna, 28 ára, 9/4

Þjálfari Mexíkóa er Javier Aguirre sem er 51 árs og fyrrum landsliðsmaður Mexíkó. Hann stjórnaði spænsku liðunum Osasuna og Atlético Madrid frá 2002 til 2009 en var sagt upp hjá síðarnefnda liðinu á síðasta ári, eftir að hafa þar á undan náð besta árangri þess um árabil. Hann tók landsliðinu 3. apríl á síðasta ári, eftir að Sven-Göran Eriksson var sagt upp störfum.

Aguirre stýrði liði Mexíkó í gegnum úrslitakeppni Norður- og Mið-Ameríku síðasta haust en hafði fyrr á árinu lent í sérstöku máli. Hann fékk þriggja leikja bann fyrir að sparka í leikmann Panama í leik þjóðanna í júlí. En undir hans stjórn vann Mexíkó sigur í Gullbikar Norður- og Mið-Ameríku þá um sumarið og sigraði Bandaríkin í fyrsta skipti á útivelli í 10 ár.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is