23 stuðningsmenn Herthu Berlin í bann

Stuðningsmenn Herthu Berlin hlaupa inn á völlinn. stækka

Stuðningsmenn Herthu Berlin hlaupa inn á völlinn. Reuters

Þýska knattspyrnuliðið Hertha Berlin hefur sett 23 stuðningsmenn liðsins í þriggja ára bann frá leikjum liðsins eftir að þeir gerðu uppþot á ólympíuleikvangnum í Berlín um síðustu helgi þegar Hertha beið ósigur gegn Nurnberg.

Eftir að Nurnberg skoraði sigurmarkið í uppbótartíma stukku um það bil 100 stuðningsmenn Herthu-liðsins inn á völlinn þar sem þeir hlupu á eftir leikmönnum liðsins, gerðu að þeim aðsúg og skemmdu eigur félagsins.

Þýska knattspyrnusambandið vinnur að rannsókn uppþotsins og forráðamenn Herthu Berlin greindu frá því í dag að 23 stuðningsmenn liðsins hafi verið settir í bann sem gildir til þriggja ára.

Hertha Berlin, sem Eyjólfur Sverrisson var á mála hjá í nokkur ár, situr á botni þýsku 1. deildarinnar og blasir fallið við félaginu en það er 5 stigum á eftir Freiburg og 8 stigum á eftir Hannover.


  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is