Hannes Sigurðsson á förum frá Sundsvall

Hannes Sigurðsson fagnar marki með Sundsvall. stækka

Hannes Sigurðsson fagnar marki með Sundsvall. mbl.is/gifsundsvall.se

Knattspyrnumaðurinn Hannes Þ. Sigurðsson, sem er á mála hjá sænska 1. deildarliðinu Sundsvall, er á förum frá félaginu. Hannes á eitt ár eftir af samningi sínum við Sundsvall. Viðræður um nýjan samning hafa staðið yfir í nokkurn tíma en þær hafa nú siglt í strand og líklegt er að hann verði seldur þegar opnað verður fyrir félagaskipti í sumar.

,,Nú er það orðið ljóst að ég skrifa ekki undir nýjan samning og það er reyndar búið að stefna í þetta í nokkurn tíma. Nú er bara spurning hvort ég fari þegar glugginn opnast í sumar eða hvort ég klári tímabilið og fari þá án greiðslu eftir tímabilið,“ sagði Hannes í samtali við Morgunblaðið í gær. Hannes kom til Sundsvall frá norska liðinu Viking fyrir tímabilið 2008 og gerði þriggja ára samning við sænska liðið. Hann var markahæsti leikmaður liðsins á síðustu leiktíð, skoraði 10 mörk í 22 leikjum.

Nánar er rætt við Hannes í Morgunblaðinu í dag. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is