Ondo með þrennu í sigri Grindvíkinga

Gilles Mbang Ondo skoraði þrennu í dag. stækka

Gilles Mbang Ondo skoraði þrennu í dag. mbl.is

Gilles Mbang Ondo fór mikinn í liði Grindvíkinga í 3:2 sigri þeirra gegn Stjörnunni í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, en liðin áttust við í Reykjaneshöllinni í dag.

Ondo skoraði öll þrjú mörk Grindvíkinga en Ólafur Karl Finsen og  Þorvaldur Árnason gerðu mörk Garðabæjarliðsins.

Grindavík komst með sigrinum upp fyrir Stjörnuna í annað sætið í riðli 1. ÍA er efst með 13 stig, Grindavík er í öðru sæti með 9 stig og Stjörnumenn í því þriðja með 7.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is