Real Madrid náði þriggja stiga forskoti

Leikmenn Real Madrid fagna. stækka

Leikmenn Real Madrid fagna. Reuters

Real Madrid náði í kvöld þriggja stiga forskoti á toppi spænsku 1. deildarinnar í knattspyrnu þegar liðið sigraði Sporting Gijon, 3:1, á heimavelli sínum.

Gestirnir náðu forystu á 53. mínútu en á 13 mínútna kafla gerðu heimamenn út um leikinn með þremur mörkum. Rafael van der Vaart jafnaði metin á 55. mínútu, Xabi Alonso kom Madridarliðinu yfir á 57. mínútu og Gonzalo Higuain innsiglaði sigurinn á 68. mínútu.

Real Madrid hefur 68 stig í efsta sæti. Barcelona hefur 65 stig en liðið sækir Zaragoza heim á morgun. Valencia er í þriðja sætinu með 47 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is