Þrír nýliðar í byrjunarliði Íslands
Þrír nýliðar eru í byrjunarliði Íslands sem mætir Færeyjum í æfingaleik í Kórnum á morgun og hefst leikurinn klukkan 12. Nýliðarnir sem hefja leik eru Skúli Jón Friðgeirsson, Jón Guðni Fjóluson og Kolbeinn Sigþórsson.
Byrjunarliðið:
Markvörður: Gunnleifur Gunnleifsson
Hægri bakvörður: Skúli Jón Friðgeirsson
Vinstri bakvörður: Arnór Sveinn Aðalsteinsson
Miðverðir: Valur Fannar Gíslason og Jón Guðni Fjóluson
Tengiliðir: Bjarni Guðjónsson, fyrirliði, Guðmundur Kristjánsson og Matthías Vilhjálmsson
Hægri kantur: Steinþór Freyr Þorsteinsson
Vinstri kantur: Jóhann Berg Guðmundsson
Framherji: Kolbeinn Sigþórsson
Miðasala verður í Kórnum og opnar hún klukkustund fyrir leik eða kl. 11:00. Miðaverð er 1.000 krónur fyrir fullorðna en frítt er inn fyrir 16 ára og yngri.






