HK og Grótta skildu jöfn

Aaron Palomares skoraði mark HK. stækka

Aaron Palomares skoraði mark HK. mbl.is/Ómar Óskarsson

HK og Grótta gerðu 1:1 jafntefli í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, en liðin áttust við í Kórnum í kvöld. Sigurvin Ólafsson kom Gróttumönnum yfir á 63. mínútu en markið kom eftir langt innkast Seltirninga. HK-ingar jöfnuðu metin fimm mínútum síðar þegar Aaron Palomares skoraði eftir sendingu frá Herði Árnasyni.

Gróttumenn fengu þar með sitt fyrsta stig í 3. riðli A-deildar en HK-ingar hafa 3 stig. Bæði lið hafa spilað fimm leiki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is