Messi með þrennu í sigri Barcelona

Lionel Messi skoraði þrennu í kvöld. stækka

Lionel Messi skoraði þrennu í kvöld. Reuters

Argentínumaðurinn Lionel Messi er algjörlega óstöðvandi þessa dagana en hann skoraði þrjú marka Barcelona í kvöld þegar liðið sigraði Zaragoza á útivelli, 4:2, í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu.

Messi kom Barcelona í 3:0 en heimamenn náðu að hleypa spennu í leikinn þegar þeir minnkuðu muninn í eitt mark með því að skora á 85. og 89. mínútu en Svíinn Zlatan Ibrahimovic innsiglaði sigur meistaranna með marki úr vítaspyrnu á 90. mínútu.

Barcelona komst þar með upp að hlið Real Madrid en spænsku risarnir eru efstir og jafnir á toppi deildarinnar með 68 stig og það stefnir í rosalega slag liðanna um meistaratitilinn. Valencia er í þriðja sætinu með 50 stig.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is