„Draumur sem er nú að rætast“

Kolbeinn Sigþórsson stækka

Kolbeinn Sigþórsson Kristinn Ingvarsson

Morgunblaðið Eftir Sindra Sverrisson, sindris@mbl.is
Kolbeinn Sigþórsson lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Ísland í gær í sigrinum á Færeyjum og hann var búinn að skora eftir 37 mínútna leik.

„Það er fínt náttúrlega að geta skorað svona í fyrsta leiknum en ekki síður að ná að innbyrða sigur. Það hefði ekki verið gaman að tapa fyrir Færeyjum. Þetta var bara góður sigur fyrir hópinn enda kom það ekki til greina að Ísland tapaði aftur hérna. Við sýndum það alveg í dag að við erum með betra lið,“ sagði Kolbeinn sem fylgdi eftir góðri frammistöðu sinni með U21-landsliðinu en hann skoraði með því í 2:2-jafntefli gegn Þýskalandi í undankeppni EM í byrjun mánaðarins.

Kolbeinn er tvítugur að aldri og leikur með varaliði AZ Alkmaar í Hollandi. Hann segist lengi hafa ætlað sér sæti í A-landsliðinu: „Þetta er náttúrlega búin að vera stefnan alveg síðan ég var pínulítill þannig að það má segja að þetta sé draumur sem er nú að rætast. Vonandi heldur þetta bara áfram og ég næ að halda áfram á sömu braut,“ sagði Kolbeinn sem hefur lítið fengið að spreyta sig með aðalliði AZ nú í vetur en það kann að breytast standi hann sig áfram líkt og hann gerði í gær.

„Ég fann mig bara vel í leiknum, er í fínu formi, og það helsta sem mér fannst vanta var bara að ég skoraði fleiri mörk því ég fékk þrjú fín færi. Sigurinn er samt mun mikilvægari,“ sagði Kolbeinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar


finnur.is