Messi sá besti í sögunni (myndband)

Lionel Messi skorar annað mark sitt í leiknum gegn Zaragoza í gær. stækka

Lionel Messi skorar annað mark sitt í leiknum gegn Zaragoza í gær. Reuters

Johan Laporta forseti Evrópu-og Spánarmeistara Barcelona segir að Argentínumaðurinn Lionel Messi sé besti fótboltamaður sögunnar en Messi átti enn einn stórleikinn með Börsungum í gærkvöld. Hann skoraði sína aðra þrennu á átta dögum þegar Barcelona bar sigurorð af Real Zaragoza, 4:2, og hefur nú skorað 34 mörk á leiktíðinni.

Mörkin hjá Messi, smellið HÉR

,,Hann er besti leikmaður í heimi og í sögu fótboltans. Ásamt Johan Cruyff og Diego Maradona þá er Messi sá besti sem við höfum séð hjá Barcelona,“ sagði Laporta við sjónvarpsstöðina Canal + eftir leik Börsunga í gærkvöld.

,,Messi er hreint út sagt algjör snillingur. Hann spilar fyrir liðið og er leiðtoginn í því,“ sagði forsetinn en auk þess að skora þrennu fékk hann vítaspyrnu sem Zlatan Ibrahimovic skoraði úr.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is