Áhorfandi hljóp inná í viðureign Mexíkó og Íslands (myndband)

Matthías Vilhjálmsson á hér í höggi við leikmenn Mexíkó og …
Matthías Vilhjálmsson á hér í höggi við leikmenn Mexíkó og Arnór Sveinn Aðalsteinsson fylgist spenntur með. Heimasíða mexíkóska knattspyrnusambandsins

Einn stuðningsmaður mexíkóska landsliðsins í knattspyrnu hljóp inn á völlinn á upphafsmínútunum í seinni hálfleik í viðureign Mexíkó og Íslands á Bank of America Stadium í Charlotte í Bandaríkunum í nótt.

Stuðningsmaður Mexíkó hleypur inn á völlinn, smellið HÉR

Leikurinn var stöðvaður strax í byrjun seinni hálfleiks þegar maðurinn hljóp inná en hann náðist ekki fyrr en eftir góða stund. Fjórir fílefldir öryggisverðir náðu honum loks og handjárnuðu á miðjum vellinum!

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert