Margrét: Höfum alltaf trú á að við skorum
„Við erum með gríðarlega reynslumikið lið sem hefur trú á því að við getum skorað mark í hverjum einasta leik. Það var því ekkert sem kom okkur á óvart gegn Serbum, við vorum ekki búnar að skora í fyrri hálfleik en það voru allir með það á hreinu að það myndi gerast í þeim síðari," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir framherji íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta eftir 2:0 sigur liðsins gegn Serbum í dag.
Margrét skoraði fínt mark í fyrri hálfleik sem var dæmt af vegna rangstöðu og í síðari hálfleik var hún nálægt því að vippa boltanum framhjá markverði Serba.
Framherjinn hefur skorað 52 mörk fyrir landsliðið í 64 landsleikjum en meiðsli í aftanverðu læri hafa hrjáð Margréti undanfarin tvö ár en hún telur að þeim kafla sé nú lokið.
„Ég hef þurft að breyta mínum leikstíl aðeins, en vonandi get ég farið að taka aftur langa og hraða spretti líkt og ég var vön að gera. Ég hef einfaldlega ekki getað tekið aukaæfingar og annað sem þarf til þess að ná upp hraðanum. Það mun koma hægt og bítandi á næstu mánuðum," sagði Margrét Lára Viðarsdóttir.






