Ótrúleg uppákoma í Króatíu
Klara Bjartmarz, starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands, stillti sér upp fyrir framan sláttuvélina á Town Stadium í gær þegar króatíski vallarstjórinn hóf að slá keppnisvöllinn á miðri æfingu íslenska liðsins. Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Eftir að eftirlitsmaður UEFA gerði athugasemdir við hæð grassins á vellinum fór vallarstjórinn rakleiðis út á völl á sláttuvélinni og hóf að slá völlinn á miðri æfingu íslenska landsliðsins og var sláttuvélinni ekið örfáum metrum frá leikmönnum Íslands sem voru með hugann við æfingu liðsins.
Klara Bjartmarz, starfsmaður Knattspyrnusambands Íslands og aðalfararstjóri landsliðsins, tók í taumana og staðsetti sig fyrir framan sláttuvél vallarstjórans til þess að stöðva uppátæki hans.Klara og króatíski vallarstjórinn hnakkrifust í stutta stund og gerði vallarstjórinn tilraun til þess að aka á Klöru þar sem hún stóð fyrir framan sláttuvélina. Klara gaf sig ekki þrátt fyrir gríðarleg mótmæli frá króatíska vallarstjóranum.
Sjá ítarlega umfjöllun um þessa uppákomu í Morgunblaðinu í dag.






