KR mætir Breiðabliki í úrslitum Lengjubikarsins

Kjartan Henry Finnborgason var á skotskónum í kvöld.
Kjartan Henry Finnborgason var á skotskónum í kvöld. Ljósmynd/heimsíða KR

KR mætir Breiðabliki í úrslitum Lengjubikarsins í knattspyrnu karla eftir 3:0 sigur á Val í undanúrslitum í kvöld.

KR hafði yfir í hálfleik 1:0 eftir að Mark Rutgers skoraði á 39. mínútu. Framherjarnir Björgólfur Takefusa og Kjartan Henry Finnbogason bættu við mörkum í síðari hálfleik. Björgólfur skoraði úr vítaspyrnu á 50. mínútu og Kjartan skoraði á 65. mínútu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert