Milito valinn maður leiksins

Javier Zanetti fyrirliði Inter lyftir Evrópubikarnum á loft.
Javier Zanetti fyrirliði Inter lyftir Evrópubikarnum á loft. Reuters

Argentínski framherjinn Diego Milito var valinn maður leiksins eftir úrslitaleik Inter og Bayern München í Meistaradeildinni í kvöld. Mililto, sem verður 31 árs gamall í næsta mánuði, skoraði bæði mörk Inter í leiknum og hann skoraði þar með sex mörk í keppninni.

,,Þetta er mikill gleðidagur fyrir mig og ég er virkilega ánægður fyrir hönd Inter. Við eigum þennan titil skilinn, félagið og forseti félagsins. Ég vil þakka Inter og forsetanum,“ sagði Milito eftir leikinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert