HM-draumurinn úr sögunni
Frakkland sigraði Ísland, 1:0, í undankeppni heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu á Laugardalsvellinum í dag. Frakkar tryggðu sér þar með sigur í 1. riðli keppninnar og fara í umspil um sæti í lokakeppni HM en möguleikar Íslands eru úr sögunni.
Gaëtane Thiney skoraði sigurmark Frakka á 60. mínútu og það er fyrsta markið sem Ísland fær á sig á Laugardalsvellinum í fjögur ár. Þetta eru jafnframt fyrstu stigin sem Ísland tapar í Laugardalnum á þeim tíma.
Íslenska liðið á einn leik eftir í keppninni en það mætir Eistlandi á útivelli á miðvikudaginn.
Lið Íslands: Guðbjörg Gunnarsdóttir - Rakel Hönnudóttir, Sif Atladóttir, Katrín Jónsdóttir, Ólína G. Viðarsdóttir - Edda Garðarsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Sara B. Gunnarsdóttir - Dóra María Lárusdóttir, Dagný Brynjarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir.
Varamenn: Sandra Sigurðardóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Rakel Logadóttir, Fanndís Friðriksdóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir, Berglind Björg Þorvaldsdóttir, Kristín Ýr Bjarnadóttir.
Lið Frakklands: Bérangére Sapowicz - Laura Georges, Ophélic Meilleroux, Sandrine Soubeyrand, Corine Franco, Sonia Bompastor, Camille Abily, Elodie Thomis, Louisa Necib, Elise Bussablia, Gaetane Thiney.
Varamenn: Céline Deville, Sandrine Dusang, Laure Boulleau, Eugénie Le Sommer, Sabrina Viguier, Caroline Pizzala, Laure Marie Delie.








