Teitur stýrir Whitecaps í MLS-deildinni
Teitur tók við liði Whitecaps í ársbyrjun 2008 en hann hafði hætt störfum hjá KR á miðju sumrinu þar á undan. Whitecaps hefur gengið að óskum undir hans stjórn. Liðið vann USL-1 deildina á fyrsta ári og hreppti annað sætið í henni 2009. Á þessu tímabili er liðið í NASL-2 deildinni og er sem stendur í toppsætinu.
„Teitur hefur skilað frábæru starfi í hálft þriðja ár sem leiðtogi og kennari. Gífurleg reynsla hans sem þjálfari og leikmaður í sterkum deildum í Evrópu hefur haft geysileg áhrif á allt okkar félag. Teitur hefur víða náð árangri og setur ávallt markið hátt fyrir sjálfa sig og aðra,“ sagði Bob Lenarduzzi, forseti Whitecaps og fyrrum landsliðsmaður Kanada, í tilkynningu frá félaginu.
„Það er tilhlökkunarefni að fást við þá áskorun að stjórna liðinu í efstu deild í Norður-Ameríku,“ sagði Teitur í sömu tilkynningu.






