Helgi: Stress en þrjú stig í hús
„Það var eitthvað stress í þessu hjá okkur sem er eðlilegt enda mikið undir en við fengum þrjú stig í hús og það skiptir öllu,“ sagði Helgi Sigurðsson sem skoraði annað mark Víkinga í 2:1 sigri á ÍR í Víkinni í dag þegar næstsíðasta umferð 1. deildar karla fór fram.
„Við vissum að þetta yrði hörkuleikur og við þyrftum að hafa fyrir honum enda kom það á daginn því ÍR-ingar gáfu ekkert eftir. Við vorum þokkalegir í fyrri hálfleik en ekki nógu góðir í seinni hálfleik þó að við næðum að skora tvö mörk. Það var agalegt að skora ekki í fyrri hálfleik því það setti vissa pressu á okkur og maður veit að tíminn fer frá manni en við ákváðum í hálfleik að koma dýrvitlausir til að skora strax og gerðum það en gleymdum okkur síðan sjálfir einu sinni og þá var erfitt að fara af stað aftur en sem betur fer náðum við að klára leikinn. Stressið í lokin var svo mikið að við hugsuðum meira um að halda boltanum og missa ekki á slæmum stöðum en undir venjulegum kringumstæðum hefðum við gert út um svona leik tveimur leikmönnum fleiri. Ég fékk gott færi í lokin en aðalatriðið var að sigla þessum stigum í hús.“
Víkingar er nú efstir í 1. deild með 42 stig. Leiknir er með sama fjöldi en aðeins lakara markahlutfall og Þór frá Akureyri kemur fast á hæla þeirra með 40 stig nú þegar 6 stig eru í pottinum. „Staðan efst í deildinni er mjög jöfn og það virðist ekkert lið ætla að gefa eftir svo þetta verður svona þar í lokin og það er eins gott að við séum á tánum. Við eigum tvo erfiða leiki eftir og þurfum að hafa fyrir því að vinna þá en það ætlum við og uppskeran verður vonandi sú að við verðum í úrvalsdeildinni á næsta ári. Til þess að ná því þarf sitt af hverju en reynslan og breiddin skiptir máli og við höfum svolítið af hvoru tveggja svo við munum ekkert gefa eftir. Við vitum líka að þetta verður erfitt hjá hinum liðunum líka, þeirra leikmenn eru örugglega líka stressaðir,“ bætti Helgi við.






