Strákarnir þurfa líklega eitt stig enn

Kolbeinn Sigþórsson skorar hér gegn Þjóðverjum á Kaplakrikavelli. stækka

Kolbeinn Sigþórsson skorar hér gegn Þjóðverjum á Kaplakrikavelli. mbl.is/Kristinn

Íslenska 21-árs landsliðið í knattspyrnu stendur tæpt með að komast í umspil Evrópukeppninnar eftir úrslit gærdagsins í öðrum riðlum.

Útlit er fyrir að strákarnir hans Eyjólfs Sverrissonar þurfi að krækja sér í stig gegn efsta liði riðilsins, Tékklandi, á útivelli á þriðjudaginn til að fara áfram. Í gær minnkuðu nokkuð möguleikarnir á því að núverandi stigatala dygði liðinu til að verða eitt af þeim fjórum liðum sem nær bestum árangri í öðru sæti í sínum riðli.

Ísland er með 16 stig eftir 7 leiki en Tékkar, sem gerðu jafntefli við Þjóðverja í gær, 1:1, eru efstir í riðlinum með 19 stig. Íslenska liðið getur því unnið riðilinn, takist því að leggja Tékkana með tveggja marka mun, en þá yrðu liðin jöfn að stigum. Það skiptir þó ekki öllu máli, öll fjórtán liðin sem fara áfram úr riðlakeppninni taka þátt í umspilinu um sjö sæti í lokakeppninni sem fram fer næsta sumar. Aðalmálið er því að fá stig sem myndi örugglega duga til að komast í umspilið.

Ísland er þó enn með bestan árangur í 2. sæti í riðlunum tíu, en liðið sat hjá í þeirri umferð sem spiluð var í gær og í dag. Eftir úrslit gærdagsins er staðan þannig að miklar líkur eru á að lið í fimm riðlum standi uppi með betri árangur en Ísland, takist íslensku strákunum ekki að næla í stig í Tékklandi.

Það þurfa því að koma til hagstæð úrslit í tveimur af þeim fimm riðlum til að koma Íslandi áfram, tapist leikurinn á þriðjudaginn. Málið gæti þó skýrst aðeins í dag þegar nokkrir leikir fara fram.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is