ÍBV sigurvegari 1. deildar

Skammt er síðan ÍBV fagnaði því að hafa tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni. stækka

Skammt er síðan ÍBV fagnaði því að hafa tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni. Ljósmynd/Sigfús

Eyjakonur unnu 3:1 sigur á Þrótti R. í Þorlákshöfn í dag og tryggðu sér þar með sigur í 1. deildinni í knattspyrnu í ár. Bæði lið höfðu tryggt sér sæti í Pepsideildinni að ári fyrir úrslitaleikinn í dag.

Hlíf Hauksdóttir kom ÍBV yfir í dag með marki beint úr hornspyrnu en Ruth Þórðar, fyrrum leikmaður Fylkis, jafnaði metin fyrir Þrótt. Hin suður-afríska Lerato Kgasago sá hins vegar um að tryggja ÍBV sigur með tveimur mörkum. Það fyrra kom upp úr óbeinni aukaspyrnu af löngu færi en hið seinna úr vítaspyrnu.

Í undanúrslitum 1. deildarinnar vann Þróttur sigur á Selfossi en ÍBV vann Keflavík.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is