Poulsen: Fjarvera Eiðs sýnir styrk Íslands

Christian Poulsen í leik með Dönum gegn Áströlum. stækka

Christian Poulsen í leik með Dönum gegn Áströlum. Reuters

Christian Poulsen, fyrirliði danska landsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Liverpool, segir að það sýni styrk íslenska landsliðsins að Eiður Smári Guðjohnsen skuli ekki hafa verið valinn til að spila með því gegn Noregi og Danmörku.

Poulsen og félagar hans í danska liðinu fylgdust með leik Íslands og Noregs á föstudagskvöldið og Poulsen sagði við Ekstrabladet fyrir æfingu danska liðsins í dag að ljóst væri að Ísland yrði erfiður mótherji.

„Íslendingarnir voru sérstaklega góðir í fyrri hálfleik. Þeir sýndu gott samspil og þó stjörnur eins og Hermann Hreiðarsson og Eiður Guðjohnsen væru ekki með virtist liðið mjög samstillt. Guðjohnsen er ekki meiddur, hann er bara ekki í æfingu. Áður hefði hann samt verið sjálfsagður í liðið, og þetta bendir til aukinnar samkeppni um stöður í liðinu og að gæði leikmanna hafi aukist," sagði Poulsen og kvaðst eiga von á erfiðum leik á þriðjudag.

„Í íslenska liðinu eru margir úr 21-árs liðinu sem vann Þýskaland, liðið sem áður var Evrópumeistari. En það tapaði þó fyrir Noregi og við vonumst að sjálfsögðu eftir sigri. Það yrði ekki verra ef Noregur og Portúgal gerðu jafntefli á meðan," sagði Poulsen en Danir fögnuðu mjög óvæntu úrslitunum á föstudagskvöld þegar Portúgal og Kýpur gerðu jafntefli, 4:4.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar


finnur.is