Sörensen bítur á jaxlinn gegn Íslandi

Thomas Sörensen hefur lent í ýmsu sem markvörður. stækka

Thomas Sörensen hefur lent í ýmsu sem markvörður. Reuters

Thomas Sörensen, hinn reyndi markvörður danska landsliðsins í knattspyrnu og nýr samherji Eiðs Smára Guðjohnsens hjá Stoke City, ætlar að verja mark Dana gegn Íslendingum á Parken á þriðjudagskvöld þrátt fyrir meiðsli.

Þátttaka hins 34 ára gamla Sörensens í leiknum á Parken hefur verið talin óviss vegna meiðsla í olnboga sem hafa þjakað hann undanfarinn mánuð.

Sörensen tók þátt í æfingu danska liðsins í Helsingör í morgun og var þar á fullu í 80 mínútur. Hann staðfesti við danska fréttamenn fyrir æfinguna að olnboginn væri mjög aumur. „Ég finn stöðugt fyrir þessu og mun gera það áfram. En ég get æft með af fullum krafti og þar me ðer ljóst að ég er að fullu leikfær á þriðjudag," sagði Sörensen.

Hann varð fyrir meiðslunum í fyrsta leik úrvalsdeildarinnar í sumar, gegn Wolves, en þá lenti hann illa með olnbogann á aftari burðarstöng marksins.

„Ég hef fengið verkjastillandi sprautur fyrir tvo síðustu leiki en samt finn ég til þegar ég lendi á olnboganum. Þannig er þetta bara en það er sársauki sem ég get leitt hjá mér," sagði Sörensen og hyggst spila sinn 91. landsleik á þriðjudagskvöldið þegar Íslendingar mæta á Parken.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Fótbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí


finnur.is