Fyrsta mark Gylfa fyrir Hoffenheim (myndband)

Gylfi Þór fagnar fyrsta marki sínu með Hoffenheim.
Gylfi Þór fagnar fyrsta marki sínu með Hoffenheim. Reuters

 Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu var hetja Hoffenheim í dag þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Kaiserslautern í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu. Gylfi tryggði sínum mönnum annað stigið þegar hann jafnaði metin í 2:2 með sinni fyrstu spyrnu í leiknum.

Mark Gylfa gegn Hoffenheim, smellið HÉR

Gylfi skoraði markið með skoti beint úr aukaspyrnu og var þetta fyrsta mark hans fyrir Hoffenheim en þetta var annar leikur hans með liðinu. Hoffenheim er í öðru sæti deildarinnar með 10 stig eftir fjóra leiki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert